Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Nokkur mikilvæg atriði um orkunýtingu og álverið í Helguvík

Af www.jorunn.is 03.11.2009 

Sumir virðast ekki skilja hvers vegna sjónir manna beinast að álveri í Helguvík nú um stundir. Sagt er að þeir sem eru hlynntir Helguvík séu álverssinnar, að þeir vilji engan annan iðnað, og að þeir setji öll eggin í sömu körfuna.

Að mörgu að hyggja

Vandi orkufyrirtækjanna felst m.a. í því að þurfa að fjármagna framkvæmdir að fullu áður en þær hefjast. Til að fjármagna byggingu virkjunar þarf að vera til staðar orkusölusamningur. Margt hefur verið skoðað og auðvitað eru margir aðrir áhugaverðir kostir, en því miður er fátt ef nokkuð annað í hendi en orkusölusamningar til álvera. Gagnaverin, svo dæmi sé tekið, vilja aðeins gera orkusölusamning til fimm ára á meðan álversfyrirtækin eru tilbúin að skuldbinda sig til 20-25 ára. Aðeins með svo löngum orkusölusamningum geta orkufyrirtækin fjármagnað virkjanaframkvæmdir að fullu. Þá þarf ríkissjóður ekki að leggja orkufyrirtækjunum til skattfé en getur þess í stað lagt meira af mörkum í þjónustu við skattgreiðendur.

Þegar fullyrt er að hvert starf í álveri kosti mikla peninga má ekki gleyma að það kostar skattgreiðendur ekki neitt ef ríkið þarf ekki að fjármagna virkjanir. Þeir peningar sem ríkið myndi þurfa að setja í orkunýtingu og störf í orkufrekum iðnaði yrðu þá ekki notaðir í annað. Þeir peningar gætu þá ekki farið í annars konar uppbyggingu s.s. ferðaþjónustu. Miklir möguleikar geta skapast í ferðaþjónustu með tilkomu virkjana og hefur ferðamönnum sem heimsækja Hellisheiðavirkjun fjölgað jafnt og þétt. Á þessu ári er áætlað að um 100.000 ferðamenn skoði virkjunina samanborið við 30.000 árið 2008, þá er ótalinn allur sá fjöldi sem heimsækir Hengilssvæðið og nýtur útivistar.

Arðsemisútreikningar OR

Orkuveita Reykjavíkur setur sér það markmið að ná 15% arðsemi eiginfjár vegna virkjanaframkvæmda í þágu stóriðju. Miðað við það má niðurgreiða lánin á innan við 20 árum. Raforkusölusamningar sem gerðir eru vegna stóriðju eru til 20-25 ára eins og áður segir. Reynslan sýnir að í tilfelli Nesjavalla megi búast við að virkjunin borgi sig upp á skemmri tíma, eða 16-17 árum.

Orkuveita Reykjavíkur hefur haldið til haga upplýsingum um starfsmannafjölda og þann tíma sem þarf til undirbúnings og framkvæmda við virkjanir. Undirbúnings- og framkvæmdatími við virkjanir hefur lengst umtalsvert á síðustu árum vegna aukinna krafna stjórnvalda. Tölurnar sýna að framkvæmdatími jarðvarmavirkjana er að meðaltali um sex ár. Þar af má reikna með fjórum árum í rannsóknir á jarðhitasvæðunum, rannsóknarboranir og annan undirbúning. Framkvæmdirnar sjálfar taka svo aðeins um tvö ár, en þeim má skipta niður í borverk, mannvirki, lagnir og uppsetningu vélbúnaðar. Að meðaltali má reikna með um 1.000 mannárum við framkvæmdir við 90 MW virkjun. Gert er ráð fyrir um 100 störfum í fjögur ár og 300 störfum í tvö ár.

Við þurfum fjármagn til framkvæmda og til uppbyggingar á atvinnuskapandi starfsemi. Við þurfum störfin og verðmætin sem t.d. álver skapa. Skatttekjurnar gera okkur kleift að halda úti öflugu heilbrigðis-, mennta- og velferðarkerfi á Íslandi, sem forðar okkur frá þjóðfélagslegum vanda til langrar framtíðar. Okkur ber skylda til að nýta alla þá möguleika sem landið gefur okkur og láta þá ekki renna okkur úr greipum.

Þessi grein var birt í Morgunblaðinu í dag


Fjölgun barna sem njóta sérstakrar fjárhagsaðstoðar

Af www.jorunn.is 29.10.2009 

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar hefur undanfarið gert átak í því  að kynna reykvískum foreldrum möguleika á sérstakri fjárhagsaðstoð vegna barna. Í því skyni hefur meðal annars verið dreift auglýsingum á íslensku, ensku og pólsku í leikskólum og grunnskólum borgarinnar. Í bókun velferðarráðs í gær var átakinu fagnað: „Það er mikilvægt að foreldrar sem á því þurfa að halda séu hvattir til að nýta þennan rétt börnum sínum til handa. Öll börn eiga rétt á að njóta frístunda, leikja við jafnaldra og hollra skólamáltíða. Það er gleðiefni að hægt sé að veita slíka aðstoð og nauðsynlegt að kynna hana vel.”

Í reglum um fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar er kveðið á um heimild til að veita sérstaka fjárhagsaðstoð til foreldra til að greiða fyrir þátttöku barna í félags- og tómstundastarfi, fyrir sumardvöl, frístundaheimili, skólamáltíðir og leikskóla. Viðmiðunarupphæð er 11.635.- kr. á mánuði fyrir hvert barn. Rétt til þessarar aðstoðar hafa foreldrar sem hafa mánaðartekjur við eða lægri en grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar sem er kr. 115.567 fyrir einstakling og kr. 184.907 fyrir hjón/sambúðarfólk. Til viðbótar er heimild til að koma til móts við börn foreldra sem verið er að styðja sérstaklega á þjónustmiðstöðvum borgarinnar.

Ástæða þess að farið er í kynningarátak af þessu tagi er ekki síst sú staðreynd að einungis um 25% þeirra fjölskyldna sem eiga rétt á slíkum stuðningi nýta sér hann. Af yfir 217 barnafjölskyldum sem þiggja fjárhagsaðstoð eru einungis 52 fjölskyldur að nýta sér þennan rétt til sérstakrar fjárhagsaðstoðar vegna barna.

Foreldrum sem vilja kynna sér rétt til fjárhagaðstoðar vegna barna er bent á að tala við ráðgjafa á þjónustumiðstöðvum borgarinnar eða snúa sér til þjónustuvers borgarinnar í síma 411 11 11.


Réttar ákvarðanir

Af www.jorunn.is  23.10.2009

Sem formaður Velferðarráðs var ég fengin til þess að vera með ræðu á Ráðstefnu Lýðheilsustöðvar síðastliðin miðvikudag. Erindið var flutt á ensku “Challenges in Welfare Services”.

Það fór mikill kliður um salinn þegar ég fór yfir í þá viðkvæmu sálma að ég væri ósátt við það hvernig núverandi ríkisstjórn væri að halda á málum. Ég sagðist telja, að miðað við fjárlögin sem nú væru fram komin væri ríkisstjórnin að gera fyrirtækjum og samfélögum erfiðara fyrir að vinna gegn atvinnuleysi og skapa störf. Þar átti ég auðvitað við fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar um hækkun skatta og álagna á fyrirtæki og sérstaklega þá orkufrekan iðnað.  Í máli mínu rakti ég hvernig við hjá Reykjavíkurborg erum að vinna fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir næsta ár. Hvernig við erum að gera allt til þess að hagræða án skattahækkana, hvernig við erum að standa vörð um störf þeirra sem vinna hjá borginni, hvernig við stöndum vörð um gjaldskrár í grunnþjónustu og jafnvel langt umfram það sem þröngt má skilgreina sem grunnþjónustu. Hvernig við erum að halda uppi atvinnustigi með því að forgangsraða framkvæmdum og tókum t.a.m. lán til framkvæmda á þessu ári. Ég fór líka yfir það hvernig við erum að leggja alla áherslu á að nú á Velferðarsviði að “virkja” fólkið okkar sem þarf nú tímabundið að þiggja fjárhagsaðstoð. Hvernig við erum að leggja upp með aukna eftirfylgni með einstaklingum og hvernig við ætlum að gera allt sem við getum til þess að hjálpa þeim einstaklingum sem nú tímabundið eru í vanda að vera tilbúnir að fara (aftur) út á vinnumarkaðinn þegar atvinnu verður að fá. Hvernig við ætlum þannig að vinna gegn þeim langtíma félagslegu afleiðingum sem við annars getum verið að horfa fram á. Einstaklingum á fjárhagsaðstoð fer fjölgandi og mun halda áfarm að fjölga þar til atvinnuleysi fer minnkandi. Atvinnuleysið er rót vandans og gegn því verðum við að vinna. Ríki og borg geta ekki ráðið allar þær þúsundir einstaklinga sem eru atvinnulausir nú í vinnu, né getum við haft verkefni eða námskeið fyrir alla. En við getum tekið ákvarðanir sem gera fyrirtækjunum kleift að blómstra og ráða til sín fólk.

Það skiptir miklu máli hvaða ákvarðanir eru teknar á þessum tímum og enn og aftur og ég segi það örugglega ekki nógu oft. Við getum með réttum ákvörðunum komist hratt upp úr þessari lægð sem við erum í, en með röngum ákvörðunum getum við aukið gríðarlega á vandann og þá verður alveg sama hversu gott velferðar, mennta og heilbrigðiskerfi við höfum í dag, við munum ekki hafa efni á að reka þau.


Ferðafrístund samþykkt í Borgarstjórn

Af www.jorunn.is frá 20.10.2009

Í dag var samþykkt samhljóða í Borgarstjórn Reykjavíkur svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Vinstri Grænna. 

“Borgarstjórn samþykkir að leita eftir samstarfi við Strætó bs. um fræðslu fyrir eldri börn í frístundaheimilum borgarinnar. Sérstakur starfsmaður verði fenginn til að fara á milli frístundaheimila með vikunámskeið, þar sem börnin ferðast um í strætó, fá kynningu á helstu strætóleiðum, skiptistöðvum og leiðakerfinu, hverfum borgarinnar og því sem þau hafa upp á að bjóða”.

Eins og ég orðaði það í borgarstjórn í dag þá finnst mér þessi tillaga vægast sagt “brilliant” og í raun ótrúlegt að hún hafi ekki komið fram fyrr. Námskeið sem þessi munu svo sannarlega geta orðið til þess að fjölga notendum strætó til lengri tíma, minnka akstur og ekki síst til þess að auka sjálfsöryggi barna við að nota leiðakerfi strætó. Það er einmitt svona verkefni sem eru svo mikilvæg, svona verkefni kosta í raun sáralítið en gera svo mikið.

Þetta er góð viðbót við annað sem við erum að gera hjá Strætó bs. og er ég þess fullviss að stjórnin mun taka þessu fagnandi og finna leið til þess að Strætó bs. geti staðið að þessu verkefni, enda kynningin á leiðakerfi og þjónustu strætó augljós.


Atvinnuleysi - nei takk!

Af www.jorunn.is frá 18.10.2009 

Afleyðingar langtímaatvinnuleysis eru þess eðlis að samfélagið verður að gera allt til þess að vinna gegn því.

Þeim fer fjölgandi sem hafa verið atvinnulausir lengur en hálft til eitt ár. Rannsóknir sýna að því lengur sem einstaklingur er án atvinnu því meiri líkur eru á langtíma félagslegum erfiðleikum og líkurnar á því að einstaklingur fari aldrei aftur út á atvinnumarkaðinn vaxa í réttu hlutfalli við lengd atvinnuleysis. Einstaklingur sem hefur verið lengi án vinnu er í hættu á að einangrast og glíma við langtíma félagslegan vanda, þunglyndi og jafnvel félagsfælni. Fyrir þann einstakling verður æ erfiðara að hitta annað fólk, jafnvel sérstaklega vini og fjölskyldu sem eru í vinnu og allt gengur vel hjá. Fyrstu mánuðirnir eru ekki svo slæmir, en þegar atvinnuleysi hefur varað í ár, og jafnvel fleiri en eitt, þá fer staðan að versna. Einstaklingurinn fer smám saman að einangra sig frá öðrum og forðast að hitta aðra. Það verður æ erfiðara að “halda haus” eins og sagt er, og erfiðara að ræða stöðuna og ástandið. Hætta á að vonleysi, fælni, ótti, einmanaleiki og depurð geri vart við sig fara vaxandi og æ erfiðara verður að snúa þróuninni við.

Því er nauðsynlegt að stjórnvöld geri allt sem í þeirra valdi stendur til að skapa atvinnu í þessu árferði. Í lok september fagnaði ég því á bloggi mínu að stjórnvöld hefðu gefið út með afgerandi hætti að haldið yrði áfram með Búðarhálsvirkjun og álver í Helguvík. Því miður á það ekki lengur við. Ég fagna því þó enn að byggt verði hátæknisjúkrahús og ég fagna því að lífeyrissjóðirnir fjármagni framkvæmdir við vegagerð og hvaðeina annað sem getur skapað atvinnu. Það skiptir allt máli núna og hlutirnir þurfa að ganga hratt fyrir sig. Það skiptir miklu máli að stjórnvöld gefi til kynna að þau styðji við uppbyggingu hér og að þau vilji erlent fjármagn í atvinnuskapandi iðnað, verkefni eða framkvæmdir. Við höfum ekki langan tíma þegar þessir þættir eru annars vegar og atvinnuskapandi verkefni þarf að fara í núna, ekki á morgun eða eftir nokkra mánuði eða á næsta ári. Ríki og sveitarfélög geta aldrei skapað næga atvinnu fyrir þann fjölda sem nú er atvinnulaus, það eru fyrirtækin í landinu sem gera það um leið og umhverfið sem fyrirtækjunum er boðið uppá verður með þeim hætti að þau geti þrifist.

Það skiptir máli að mikið atvinnuleysi verði ekki viðvarandi hjá okkur. Hver einasta fjölskylda, hver einasti einstaklingur sem glímir við atvinnuleysi núna skiptir máli. Ríkisstjórnin verður að efla Vinnumálastofnun svo hægt sé að vinna í því að virkja þá einstaklinga sem nú eru á bótum. Einstaklingar sem nú eru án atvinnu þurfa að hafa eitthvað fyrir stafni og við verðum að finna þeim verkefni.

Mér er afar minnisstæð saga nokkur sem maður sagði mér sem var atvinnulaus hér í kringum 1993. Hann sagðist hafa verið að koðna niður þegar honum stóð til boða að taka þátt í samfélagsverkefni ásamt fjórum öðrum sem voru í svipaðri stöðu. Hann sagði þetta hafa skipt sköpum fyrir sig. Ekki einungis það að hafa tilgang og eitthvað fyrir stafni, ekki síður skipti miklu máli að kynnast öðrum. Kynnast fólki í svipaðri stöðu og eignast félaga og vini til að deila með áhyggjum sínum og efasemdum, ekki síst efasemdunum um sjálfan sig sem voru farnar að gera vart við sig.  Hann vildi meina að þessi litli hópur hefði gert kraftaverk fyrir hann og haft þau áhrif að hann komst aftur út á vinnumarkaðinn fyrr en hann ella hefði gert.

Atvinnusköpun, verkefnasköpun
Eini möguleiki íslenskrar þjóðar í dag er að atvinnulífið komist aftur á lappirnar, því lengra sem líður því meira þarf til þess að koma hjólum atvinnulífsins af stað. Finnar segja að Nokia hafi komið þeim út úr kreppunni og taka jafnvel þannig til orða að segjast vona að við finnum okkar Nokia til að koma okkur út úr þessu. Við þurfum ekki að finna neitt Nokia, við eigum nokkuð sem fáar aðrar þjóðir eiga, við eigum næga orku, við eigum fiskinn og við eigum enn krónuna okkar sem nú getur hjálpað okkur í veikleika sínum. Höldum áfram, tökum þær ákvarðanir sem þarf að taka og siglum íslensku þjóðinni út úr þessum vanda með öllum þeim ráðum sem við höfum. Við erum öfunduð um allan heim af auðlindum okkar, nýtum þær í þágu íslensku þjóðarinnar og drögum ekki lappirnar í þeim efnum.


Líf í Dalnum

Af bloggi mínu jorunn.is frá 17.10.2009

Mikið líf er í Laugardalnum um þessar mundir. Dagana 15 - 25. október er hér haldið Evrópumeistaramót fatlaðra í sundi. Keppt er í innilauginni í Laugardal þar sem aðstaða er til allrar fyrirmyndar. Án þessarar laugar væri erfitt fyrir okkur að halda mót sem þetta. Hingað til lands eru komnir yfir 400 erlendir íþróttamenn ásamt um 200 aðstoðarmönnum. Það skiptir miklu máli fyrir okkur að fá hingað ferðamenn og svona mót skila miklum tekjum inn til landsins og mikilvægt að vel takist til. Fyrir mig sem formann Strætó er einstaklega jákvætt að sjá alla þessa strætó-bíla í akstri um dalinn, en notaðir eru strætisvagnar við að flytja keppendur milli staða.


Öll þessi reiði

Af bloggi mínu á Eyjunni eða jorunn.is 16.10 2009

Það er mikil reiði enn í þjóðfélaginu, ekki síst vegna þess óréttlætis sem fólki finnst hér eiga sér stað. Sumir vilja skella allri ábyrgð á hruninu á Sjálfstæðisflokkinn og þá sem þar voru í forystu. Í því sambandi gleymist alveg þáttur annarra flokka sem áttu þátt í þeim ákvörðunum sem teknar voru.

Reiðin er réttlát og eðlileg, en hún er farin að lita samfélagið okkar og það er óhætt að hafa áhyggjur af vaxandi reiði. Þessi réttláta reiði endurspeglast í umræðum manna á meðal, hún endurspeglast í pirringnum í biðröðinni, hún endurspeglast í minna þoli og minna umburðarlyndi og af því hef ég áhyggjur.

Millistéttin í landinu er alveg að fá nóg af óréttlætinu sem er í gangi. Venjulegt fólk sem gat vel staðið undir öllum sínum skuldbindingum á margt erfitt með það í dag. Þeir sem þó geta greitt, sjá fram á að vera eins og hamstur á hjóli næstu árin og uppskera ekkert nema hlaupin. Svo koma fréttir af því að rannsóknarnefndin geti því miður ekki skilað skýrslunni og þurfi lengri tíma. Var ekki hægt að sjá það fyrir löngu síðan að þyrfti meiri mannskap til að klára þetta? Það þarf að ljúka þessum störfum, hreinsa loftið og skapa sátt. Það þarf auk þess almennar aðgerðir gagnvart heimilunum, það er ekki sanngjarnt að þeir sem voru skuldsettir í topp fái sértækar aðgerðir en þeir sem geti borgað geti í besta falli fengið lengt í ólinni. Nokkuð hefur verið gert en það þarf að gera betur. Áfram með smjörið…. :-)


Grunnskólabörn kynnast ferðamáta til framtíðar

Stjórn Strætó bs samþykkti á fundi sínum þann 1. október að bjóða öllum grunnskólum sveitarfélaganna sem standa að rekstri Strætó bs. svokölluð grunnskólakort. Grunnskólakortin eru sérstök hópakort ætluð til vettvangsferða kennara og nemenda. Kortin gilda milli klukkan  9 og 15 virka daga, þ.e. utan helstu annatíma strætó sem eru snemma á morgnana og síðdegis. Tilgangurinn er að kynna strætó fyrir ungu fólki og þannig auka líkur á að börn og unglingar læri að nýta sér kosti almenningssamgangna. Um leið aukast möguleikar kennara á að fara í styttri vettvangsferðir með nemendur sína. Þannig verður auðveldara fyrir grunnskólakennara og nemendur þeirra að nýta t.a.m. listasöfn, listigarða, útikennslustofur og annað sem höfuðborgarsvæðið hefur upp á að bjóða til kennslu.

 

Aukin þekking og færni á notkun strætó
Mikilvægt er að börn og unglingar öðlist færni í að nýta sér strætó við sem flest tækifæri, því þannig aukum við vitund yngstu kynslóðarinnar um þennan valkost í samgöngum. Aukin þekking og færni skilar sér síðan í því að börn og unglingar geta nýtt sér strætó betur, bæði á skólatíma og í frístundum.

Kortin verða útbúin með skjaldamerki þess sveitarfélags sem hver skóli tilheyrir og verður fjöldi korta mismunandi eftir skólum. Miðað verður við að aldrei séu færri en tvö slík kort í skóla en annars er miðað við að eitt kort sé gefið út á hver hundrað börn. Kortin gilda einungis utan annatíma strætó til að forðast það að grunnskólahópar komi í vagnana á þeim tímum sem flestir farþegar eru í vögnunum. Engu að síður er nauðsynlegt við notkun kortanna að fara ekki af stað með stóra hópa án þess að láta Strætó bs. vita fyrirfram að von sé á stórum hópum á ákveðnum tíma á ákveðnum leiðum. Jafnframt er nauðsynlegt að hafa í huga að greiðandi farþegar hafa alltaf forgang á hópa og getur þurft að skipta hóp á fleiri ferðir ef vagninn fyllist óþægilega mikið.

 

Eykur fjölbreytni skólastarfsins
Það er von okkar í stjórn Strætó bs. að þessi nýjung muni mælast vel fyrir í grunnskólum höfuðborgarsvæðisins og verða til þess að kennarar fari í auknum mæli með nemendur í vettvangsferðir. Það eykur fjölbreytni skólastarfsins um leið og börnin læra á strætósamgöngur og kynnast þannig ferðamáta til framtíðar.

Þessi grein birtist í Fréttablaðinu í dag


Atvinnuleysi - atvinnusköpun

Afleyðingar atvinnuleysis í langan tíma eru þess eðlis að samfélagið verður að gera allt til þess að vinna gegn þeirri þróun sem er i gangi.

Þeim fer fjölgandi sem hafa verið atvinnulausir og á bótum lengur en 6 mánuði, það er nokkuð sem vert er að hafa áhyggjur af. Eftir því sem einstaklingur er lengur án atvinnu því meiri líkur eru á félagslegum erfiðleikum til lengri tíma og því meiri líkur eru á því að einstaklingurinn fari aldrei út á atvinnumarkaðinn aftur. Þannig á einstaklingur sem hefur verið án vinnu eða annarrar fastrar afþreyingar og reglulegra félagslegra tengsla í meira en sex mánuði á hættu að einangrast og glíma við langtíma félagslegan vanda, þunglyndi og félagsfælni. Þannig verður æ erfiðara að hitta annað fólk og þó sérstaklega vini og fjölskyldu sem eru í vinnu og allt gengur vel hjá. Einstaklingurinn fer að einangra sig frá öðrum og forðast að hitta aðra.  Það verður æ erfiðara að halda haus eins og sagt er og erfiðara að ræða stöðuna og ástandið, fyrir nú utan hvað peningamálin verða oft erfið og flókin viðureignar er hitt þó sennilega erfiðara. 

Fyrstu mánuðirnir eru ekki svo slæmir, en þegar þetta eru ekki lengur mánuðir heldur ár er staðan orðin erfið, þá er orðin veruleg hætta á því að þættir eins og fælni, ótti, einmanaleiki og depurð fari að gera vart við sig og æ erfiðara verður að snúa þróuninni við. Því er nauðsynlegt að stjórnvöld geri allt sem í þeirra valdi stendur til að skapa atvinnu í þessu árferði. Ég fagna því að byggt verði sjúkrahús og ríkisstjórnin hafi gefið út með afgerandi hætti að haldið verði áfram með Búðarhálsvirkjun og álver í Helguvík, ég fagna því að lífeyrissjóðirnir fjármagni framkvæmdir við vegagerð og hvaðeina annað sem getur skapað atvinnu. Það skiptir allt máli núna og þetta þarf að ganga hratt fyrri sig, við höfum ekki langan tíma þegar þessir þættir eru annars vegar og atvinnuskapandi verkefni þarf að fara í núna, ekki á næsta ári...

Það skiptir svo miklu máli að mikið atvinnuleysi verði ekki viðvarandi hjá okkur. Hver einasta fjölskylda, hver einasti einstaklingur sem glímir við atvinnuleysi núna skiptir máli. Ríkisstjórnin verður að efla Vinnumálastofnun svo hægt sé að vinna í því að virkja þá einstaklinga sem eru á bótum, jafnvel þó það þíði samfélagsþjónustu af einhverju tagi eða verkefni. Einstaklingarnir sem nú eru án atvinnu þurfa að hafa eitthvað fyrir stafni og við verðum að finna þeim verkefni.

Mér er alltaf svo minnisstætt nokkuð sem maður sagði mér sem hafði verið atvinnulaus hér í kringum 1993 og sagðist hafa verið að koðna niður þegar honum stóð til boða að taka þátt í samfélagsverkefni ásamt fjórum öðrum sem voru í svipaðri stöðu. Hann sagði þetta hafa skipt sköpum fyrir sig, ekki einungis það að hafa tilgang og eitthvað fyrir stafni, ekki síður skipti svo miklu máli að kynnast öðrum sem voru í svipaðri stöðu og eignast félaga og vini til að deila með áhyggjum sínum og efasemdum, ekki síst efasemdunum um sjálfan sig sem voru farnar að gera vart við sig.  Hann vildi meina að þessi litli hópur hefði gert kraftaverk fyrir hann og haft þau áhrif að hann komst aftur út á vinnumarkaðinn fyrr en hann ella hefði gert.

Rannsóknir sína að því lengur sem einstaklingur er á bótum því meiri líkur eru á að hann komist aldrei aftur út á vinnumarkaðinn, líkamlegir og andlegir þættir fara að gera vart við sig og margir sem eru til lengri tíma atvinnulausir enda því miður veikir og laskaðir á sálu og líkama fyrir lífstíð og þeirra bíður ekkert annað en örorka og örorkubætur.  Við verðum að vinna gegn þessu með því að skapa atvinnu og umhverfi svo atvinnuvegir okkar geti þrifist.

Atvinnusköpun, verkefnasköpun
Eini möguleiki íslenskrar þjóðar í dag er að atvinnulífið komist aftur á lappirnar, því lengra sem líður því meira þarf til þess að koma hjólum atvinnulífsins af stað. Finnar segja að Nokia hafi komið þeim út úr kreppunni og taka jafnvel þannig til orða að segjast vona að við finnum okkar Nokia til að koma okkur út úr þessu. Við þurfum ekki að finna neitt Nokia, við eigum nokkuð sem fáar aðrar þjóðir eiga, við eigum næga orku, við eigum fiskinn og við eigum enn krónuna okkar sem nú getur hjálpað okkur í veikleika sínum. Höldum áfram, tökum þær ákvarðanir sem þarf að taka og siglum íslensku þjóðinni út úr þessum vanda með öllum þeim ráðum sem við höfum. Við erum öfunduð um allan heim af auðlindum okkar, nýtum þær í þágu íslensku þjóðarinnar og drögum ekki lappirnar í þeim efnum.


Ábyrg og skynsamleg ákvörðun

Þá er lokið atkvæðagreiðslu um söluna á hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku til Magma Energy Sweden og var salan samþykkt í borgarstjórn nú fyrir stundu.

Aðalatriði þessa máls eru einföld.

  • Orkuveitu Reykjavíkur var uppálagt að selja sinn hlut í HS Orku á sama tíma og henni var uppálagt að kaupa hlut Hafnarfjarðarbæjar.
  • Ef við seljum ekki eigum við á hættu að þurfa að greiða yfir 10 milljarða í bætur til Hafnafjarðabæjar í byrjun nýs árs.
  • Ríkinu var gefinn frestur til þess að koma að málinu, gat keypt hlut okkar! Eða tekið aðrar ákvarðanir sem hefðu gert okkur kleift að fresta þessari sölu - Ríkið gerði ekkert í þá veru.
  • Söluferlið hefur verið langt og opið.

Markmiðið með þessari sölu er ekki að einkavæða HS Orku heldur að losa OR við áhrifalítinn hlut í fyrirtækinu.

Það er fyrst og fremst til þess að virða úrskurð samkeppnisyfirvalda og samkeppnislög. Með þessu er jafnframt verið að leysa ágreining við Hafnarfjarðarbæ, styrkja  fjárhagsstöðu  OR og tryggja að milljarða fjárskuldbindingar lendi ekki á Reykvíkingum í framtíðinni.

Ekki er verið að selja auðlindir. Viðskiptin ná aðeins  til samanlagðs hlutar í HS Orku, það er orkuframleiðsluhluta fyrirtækisins, en hvorki eignarréttar á auðlindum né einkaleyfisstarfseminnar.   Eins og iðnaðarráðherra hefur bent á eru hagsmunir almennings ekki í hættu þótt einkafyrirtæki eignist hlut í orkuframleiðslufyrirtækjum. 

Ákvörðun stjórnar OR var  tekin  eftir, langt og opið ferli þar sem allir og þ.á.m. ríkið gat komið að kaupum á hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku.

Orkuveita Reykjavíkur  og  Magma  Energy  gáfu  ríkisstjórn Íslands frest til að kanna hugsanlega aðkomu hennar að viðskiptunum, en ríkið hefur eins og aðrir haft rúma sjö mánuði til að koma að málinu.

Borgarfulltrúar  hafa  haft  langan  tíma  til  að  kynna  sér málið og fjölmörgum fyrirspurnum um málið hefur verið svarað.  Söluferlið hefur verið langt,  gagnsætt  og vandað. Salan hefur fengið ýtarlega umfjöllun á fundum stjórnar  OR og hafði tilboð Magma Energy verið í höndum stjórnarmanna í 17 daga  áður  en framlengdur frestur Magma rann út þann 31. ágúst. Aðdragandi afgreiðslunnar er langur, málsmeðferð vönduð og umræður ýtarlegar.

Hvergi hefur komið fram betri lausn á því hvernig OR á að uppfylla kröfu samkeppnisyfirvalda  um  að  minnka  hlut sinn í HS Orku og uppfylla þannig samkeppnislög,  leysa  deilumál  sín  við Hafnarfjarðarbæ og standa vörð um fjárhagsstöðu  OR.  Orkuveita Reykjavíkur  er  í þeirri stöðu að verða að selja umræddan hlut í HS Orku og salan er vel ásættanleg í því efnahagsumhverfi sem nú ríkir.

Efnahags- og fjármálaumhverfi nútímans leyfir ekki mikla áhættutöku og það er skylda borgarfulltrúa að draga úr óvissu í rekstri. Í því ljósi er salan á hlut Orkuveitunnar í HS Orku skynsamleg. Auðvitað hefði verið betra að selja hlutinn við aðrar aðstæður en þeim tíma eða aðstæðum er ekki til að dreifa. Samkeppniseftirlitið heyrir undir Viðskiptaráðuneytið og ríkisstjórninni hefði verið í lófa lagið að gera breytingar og losa OR undan þeirri kvöð að selja hlut sinn í HS Orku eða gera aðrar þær breytingar sem hefðu auðveldað OR að eiga hlut sinn.

Að lokum vil ég vitna í orð borgarstjóra á fundi borgarstjórnar í dag.

„Ég vil ítreka og leggja áherslu á þá staðreynd að það efnahags- og fjármálaumhverfi sem við lifum í núna leyfir ekki mikla áhættutöku. Það er skylda okkar sem ábyrgra fulltrúa þessarar borgar að styðja þær ráðstafanir fyrirtækja í okkar eigu sem eru til þess fallnar að draga úr óvissu í rekstri þeirra. Auðvitað hefði verið betra að selja þennan hlut við aðrar aðstæður. En aðrar aðstæður eru ekki fyrir hendi og ekkert okkar veit hvenær svo verður."


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Jórunn Frímannsdóttir

Höfundur

Jórunn Ósk Frímannsdóttir
Jórunn Ósk Frímannsdóttir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...i_mbl_blogg
  • ...logo
  • ...k_mynd_stor
  • Jólakortamynd 2009 003
  • DSCN2230

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 84670

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband