Atvinnuleysi - atvinnusköpun

Afleyðingar atvinnuleysis í langan tíma eru þess eðlis að samfélagið verður að gera allt til þess að vinna gegn þeirri þróun sem er i gangi.

Þeim fer fjölgandi sem hafa verið atvinnulausir og á bótum lengur en 6 mánuði, það er nokkuð sem vert er að hafa áhyggjur af. Eftir því sem einstaklingur er lengur án atvinnu því meiri líkur eru á félagslegum erfiðleikum til lengri tíma og því meiri líkur eru á því að einstaklingurinn fari aldrei út á atvinnumarkaðinn aftur. Þannig á einstaklingur sem hefur verið án vinnu eða annarrar fastrar afþreyingar og reglulegra félagslegra tengsla í meira en sex mánuði á hættu að einangrast og glíma við langtíma félagslegan vanda, þunglyndi og félagsfælni. Þannig verður æ erfiðara að hitta annað fólk og þó sérstaklega vini og fjölskyldu sem eru í vinnu og allt gengur vel hjá. Einstaklingurinn fer að einangra sig frá öðrum og forðast að hitta aðra.  Það verður æ erfiðara að halda haus eins og sagt er og erfiðara að ræða stöðuna og ástandið, fyrir nú utan hvað peningamálin verða oft erfið og flókin viðureignar er hitt þó sennilega erfiðara. 

Fyrstu mánuðirnir eru ekki svo slæmir, en þegar þetta eru ekki lengur mánuðir heldur ár er staðan orðin erfið, þá er orðin veruleg hætta á því að þættir eins og fælni, ótti, einmanaleiki og depurð fari að gera vart við sig og æ erfiðara verður að snúa þróuninni við. Því er nauðsynlegt að stjórnvöld geri allt sem í þeirra valdi stendur til að skapa atvinnu í þessu árferði. Ég fagna því að byggt verði sjúkrahús og ríkisstjórnin hafi gefið út með afgerandi hætti að haldið verði áfram með Búðarhálsvirkjun og álver í Helguvík, ég fagna því að lífeyrissjóðirnir fjármagni framkvæmdir við vegagerð og hvaðeina annað sem getur skapað atvinnu. Það skiptir allt máli núna og þetta þarf að ganga hratt fyrri sig, við höfum ekki langan tíma þegar þessir þættir eru annars vegar og atvinnuskapandi verkefni þarf að fara í núna, ekki á næsta ári...

Það skiptir svo miklu máli að mikið atvinnuleysi verði ekki viðvarandi hjá okkur. Hver einasta fjölskylda, hver einasti einstaklingur sem glímir við atvinnuleysi núna skiptir máli. Ríkisstjórnin verður að efla Vinnumálastofnun svo hægt sé að vinna í því að virkja þá einstaklinga sem eru á bótum, jafnvel þó það þíði samfélagsþjónustu af einhverju tagi eða verkefni. Einstaklingarnir sem nú eru án atvinnu þurfa að hafa eitthvað fyrir stafni og við verðum að finna þeim verkefni.

Mér er alltaf svo minnisstætt nokkuð sem maður sagði mér sem hafði verið atvinnulaus hér í kringum 1993 og sagðist hafa verið að koðna niður þegar honum stóð til boða að taka þátt í samfélagsverkefni ásamt fjórum öðrum sem voru í svipaðri stöðu. Hann sagði þetta hafa skipt sköpum fyrir sig, ekki einungis það að hafa tilgang og eitthvað fyrir stafni, ekki síður skipti svo miklu máli að kynnast öðrum sem voru í svipaðri stöðu og eignast félaga og vini til að deila með áhyggjum sínum og efasemdum, ekki síst efasemdunum um sjálfan sig sem voru farnar að gera vart við sig.  Hann vildi meina að þessi litli hópur hefði gert kraftaverk fyrir hann og haft þau áhrif að hann komst aftur út á vinnumarkaðinn fyrr en hann ella hefði gert.

Rannsóknir sína að því lengur sem einstaklingur er á bótum því meiri líkur eru á að hann komist aldrei aftur út á vinnumarkaðinn, líkamlegir og andlegir þættir fara að gera vart við sig og margir sem eru til lengri tíma atvinnulausir enda því miður veikir og laskaðir á sálu og líkama fyrir lífstíð og þeirra bíður ekkert annað en örorka og örorkubætur.  Við verðum að vinna gegn þessu með því að skapa atvinnu og umhverfi svo atvinnuvegir okkar geti þrifist.

Atvinnusköpun, verkefnasköpun
Eini möguleiki íslenskrar þjóðar í dag er að atvinnulífið komist aftur á lappirnar, því lengra sem líður því meira þarf til þess að koma hjólum atvinnulífsins af stað. Finnar segja að Nokia hafi komið þeim út úr kreppunni og taka jafnvel þannig til orða að segjast vona að við finnum okkar Nokia til að koma okkur út úr þessu. Við þurfum ekki að finna neitt Nokia, við eigum nokkuð sem fáar aðrar þjóðir eiga, við eigum næga orku, við eigum fiskinn og við eigum enn krónuna okkar sem nú getur hjálpað okkur í veikleika sínum. Höldum áfram, tökum þær ákvarðanir sem þarf að taka og siglum íslensku þjóðinni út úr þessum vanda með öllum þeim ráðum sem við höfum. Við erum öfunduð um allan heim af auðlindum okkar, nýtum þær í þágu íslensku þjóðarinnar og drögum ekki lappirnar í þeim efnum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: K Zeta

Sæl Jórunn Ósk,

Eigum við að treysta fólkinu sem kom okkur í þessa stöðu til þess að koma okku útúr henni?  Finnst þér frammistaða Bjarna Ben, á sólarströnd í fríi, nánast tillögulaus?  Held að það þyrfti að fá slökkvuliðið til þess að spúla út þessu hyski sem gætti ekki að sér þegar þjóðinni var silgt að feigðarósi.

Þú ert alltor falleg og vel gerð kona til þess að láta sjá þig innan um þetta spillta, getulausa lið.  Hringdu í 112.

Kveðja

Kristján Zoph

K Zeta, 29.9.2009 kl. 13:43

2 Smámynd: halkatla

Þessi pistill er það fordómafyllsta ógeð sem ég hef á ævi minni lesið og þú sem einhverskonar stjórnunarmanneskja í velferðarstörfum ættir að skammast þín. Svona lagað, þeas vangaveltur þínar og alhæfingar um 16 þúsunda manna hóp og geðvandamál hans, er miklu líklegri til að valda skömm og óframfærni heldur en nokkurntíma það að fá ekki vinnu í kreppunni - seinasta efnisgreinin er síðan vægast sagt bara hlægileg þegar horft er til þess að þitt lið er löngu búin að ónýta alla þessa kosti og auðævi.

halkatla, 29.9.2009 kl. 13:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jórunn Frímannsdóttir

Höfundur

Jórunn Ósk Frímannsdóttir
Jórunn Ósk Frímannsdóttir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...i_mbl_blogg
  • ...logo
  • ...k_mynd_stor
  • Jólakortamynd 2009 003
  • DSCN2230

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband