Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
27.7.2009 | 11:16
ReyCup - frábæru knattspyrnumóti lokið
Þá er lokið stærsta ReyCup móti nokkru sinni og erum við Þróttarar stolt og ánægð með hvað mótið heppnaðist vel. Hundruðir sjálfboðaliða lögðust á árarnar og gerðu mótið að því sem það varð, án þeirra hefði þetta ekki gengið upp.
Þátttakendur að þessu sinni voru 1650, þar af 1500 leikmenn. Fjöldi liða var 105, 40 kvennalið og 65 karlalið. Liðin komu alls staðar að af landinu og fimm lið komu erlendis frá, þar af þrjú frá Danmörku, eitt frá Englandi og eitt frá Færeyjum.
Eins og við er að búast lauk ReyCup 2009 með verðlaunaafhendingu. Veitt voru verðlaun til efstu liða í hverjum flokki, háttvísiverðlaun KSÍ í hverjum flokki og einnig háttvísiverðlaun ReyCup sem árlega eru veitt því félagi sem hefur staðið sig best utan vallar sem innan. Geir Þorsteinsson formaður KSÍ veitti aðalverðlaun mótsins, ég fékk það hlutverk að veita silfurverðlaun, en Kristinn Einarsson, formaður stjórnar ReyCup veitti bronsverðlaun. Það var víða dramatík og var afar sérstakt að veita silfurverðlaunin, þar áttu margir erfitt með að gleðjast yfir árangrinum og voru ósáttir við að vera ekki að taka við gullinu. Mest sárindin voru þó sennilega hjá Fylkisdrengjum í 3. flokki KK A liða, en þar þurfti vítaspyrnukeppni til að fá úr því skorið hver yrði sigurvegari.
Grillið í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum og ballið með Ingó og Veðurguðunum á Broadway á laugardagskvöldið sló í gegn að vanda. Almennt var ekki annað að heyra en þátttakendur færu sáttir heim af mótinu, en þreyttir eftir mikla útiveru í frábæru veðri og mikla skemmtun. Það var ánægjulegt að heyra liðsstjóra Reading liðsins lýsa því yfir að þetta mót stæði algerlega jafnfætis flottustu mótum sem þeir hefðu tekið þátt í og hefur hann farið víða með leikmenn Reading liðsins. Margir eru strax farnir að plana komu á ReyCup 2010, sem haldið verður síðustu helgi fyrir verslunarmannahelgi á næsta ári.
Sjá nánar um mótið, myndir og fleira á www.reycup.is
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.7.2009 | 11:54
Segir meira en margt annað um formann utanríkismálanefndar!
![]() |
Ekki formleg umsögn Seðlabanka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.6.2009 | 14:15
Ný stefnumótun stendur vörð um þjónustu Strætó
Stjórn og stjórnendur Strætó bs. hafa undanfarna mánuði unnið að mótun stefnu og framtíðarsýnar fyrir fyrirtækið ásamt því að endurskilgreina hlutverk þess sem þjónustufyrirtækis. Stefnumótunin hefur, eðli máls samkvæmt, verið undir áhrifum af þeim efnahagslegu þrengingum sem við búum við um þessar mundir. Fjármunir og fjármagn er af skornum skammti og sterk krafa er um það í samfélaginu að vel sé farið með almannafé um leið og leitast er við að veita góða og styrka þjónustu.
Höfuðmarkmið Strætó bs. er að strætósamgöngur á höfuðborgarsvæðinu séu góður og öruggur kostur í samanburði við aðra ferðamáta og stuðli að því að draga úr bílaumferð og þeim vandamálum sem henni fylgja. Framtíðarsýn stjórnar Strætó bs. er að í árslok 2014 verði Strætó þekkt sem fyrirmyndarfyrirtæki á sviði umhverfisvænna og skilvirkra strætósamgangna. Að þjónusta fyrirtækisins verði framúrskarandi og svari þörfum mikilvægustu markhópa þess. Leiðakerfið verði skilvirkt og hagkvæmt og starfsfólk ánægt og stolt af sínum störfum. Ímynd fyrirtækisins skal einkennast af virðingu, þjónustulund og vingjarnlegu viðmóti gagnvart notendum. Þá er stefnt að því að nýting fjármagns sem bundið er í rekstrinum verði með því besta sem þekkist og eigendur þess verði ánægðir með það samfélagslega virði sem þjónustan skapar.
Þjónustustefna til framtíðar
Stjórn Strætó bs. hefur skilgreint ítarlega þjónustustefnu í þeirri viðleitni að gera framtíðarsýn sína að veruleika. Þessi stefna er grundvölluð á nokkrum lykilmarkmiðum en hana er hægt að nálgast í heild sinni á http://www.straeto.is/.
Meðal helstu lykilmarkmiða er að leiðarkerfið skuli vera auðskilið og taka mið af almennum ferðaþörfum. Áhersla verður lögð á þjónustu á annatíma og hún efld eftir þörfum þannig að vagnar á stofnleiðum og öðrum helstu leiðum aki með að minnsta kosti 15 mínútna tíðni. Á öðrum tímum þ.e. um kvöld og á laugardögum og helgidögum sé þjónustan löguð að eftirspurn og haldið innan eðlilegra kostnaðarmarka á hverja ferð. Á minna notuðum leiðum getur tíðnin verið breytileg og í samræmi við notkun. Almennt er stefnt er að því að lækka meðalkostnað hverrar ferðar í leiðakerfinu í heild.
Mikilvægt er að hafa í huga að akstursleiðir geta breyst samfara fjölgun eða fækkun farþega. Til grundvallar verða þá hafðar nákvæmar reglubundnar talningar ásamt kostnaðarmati.
Í þjónustustefnunni er mikil áhersla á áreiðanleika, stundvísi og þægindi og þau markmið sett að 95% ferða séu innan 3ja mínútna frá áætlun og að vagninn sé aldrei á undan áætlun. Í því sambandi verður unnið að því með sveitarfélögunum að strætisvagnar fái aukinn forgang í umferðinni og þeir losaðir eftir megni við almennar ferðatafir.
Lögð verður aukin áhersla á innkaup og notkun umhverfisvænna vagna og nýtingu á umverfisvænum og innlendum orkugjöfum á borð við metan og raforku. Þá verða gerðar auknar kröfur til gæða og útbúnaðar í vögnum til að auka þægindi og öryggi notenda.
Almenna markmiðið er að hlutfall þeirra sem nota almenningssamgangnakerfið verði aukið innan næstu fimm ára. Í því sambandi verða markaðs- og kynningarmál efld og m.a. leitast við að kynna almenningssamgöngur sérstaklega í efri bekkjum grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu og hvetja nemendur til aukinnar notkunar.
Almenningssamgöngur hafa sjaldan verið mikilvægari en einmitt nú. Með stefnumótun Strætó bs. til næstu fimm ára sýna stjórn samlagsins og aðildarsveitarfélög einbeittan vilja sinn til að standa vörð um þjónustuna þannig að hún nýtist sem flestum á eins hagkvæman hátt og kostur er.
Þessi grein birtist í Fréttablaðinu þann 18. júní síðastliðinn
16.6.2009 | 14:24
Umfjöllun um endurfjármögnun Strætó bs í Morgunblaðinu í dag
Taka yfir 435 milljónir króna af lánum Strætó
Nemar sem fengu frítt í strætó í fyrravetur fá kort á 15.000
EIGENDUR Strætó bs., sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu, munu yfirtaka hluta af langtímalánum félagsins.
Stjórn Strætó bs. samþykkti í gær tillögu um endurskipulagningu á rekstri félagsins. Það er mat stjórnar Strætó að endurskipulagningin feli í sér skynsamlega og raunhæfa lausn á núverandi fjárhagsstöðu og veiti jafnframt nýtt tækifæri til uppbyggingar á rekstri og þjónustu.
Nemendur framhaldsskóla og háskóla, sem fengu ókeypis í strætó í fyrravetur, verður í vetur boðið að kaupa níu mánaða kort á 15.000 krónur. Það var ákveðið að halda nemaverkefninu áfram en með þessum formerkjum, sagði Jórunn Frímannsdóttir, stjórnarformaður Strætó við Morgunblaðið í gær.
Nokkrar ástæður eru fyrir því, að sögn Jórunnar, að nemar fá ekki lengur frítt með vagninum. M.a. sú að staðan er erfið hjá sveitarfélögunum en sátt hafi náðst um að fara þessa leið og um verulega niðurgreiðslu sé samt sem áður að ræða. Þetta var tilraunaverkefni og staðan er einfaldlega önnur nú en árið 2007 þegar farið var af stað. Við lögðum mikið á okkur til að geta haldið verkefninu áfram, því það er mjög jákvætt að hvetja fólk til þess að taka strætó í stað þess að ferðast um á bíl.
Jórunn lagði áherslu á að níu mánaða kortið væri mjög hagkvæmt. Ef eigandinn færi eina ferð til og frá vinnu eða skóla á dag kostaði hver ferð 75 krónur en eftir niðurgreiðslu væri kostnaðurinn helmingur þess. Hver ferð kostar því nemann 37,5 krónur, miðað við að hann noti kortið fram og til baka hvern virkan dag.
Jórunn sagði að skv. talningu nýttu sér alls 700-800 nemendur Háskóla Íslands strætisvagn á sólarhring en nemendur HÍ eru um 12.000. Þetta er minni notkun en við höfðum búist við fyrst kortið var frítt. Einnig verður boðið upp á annarkort, sem á eftir að útfæra með forráðamönnum stúdenta að sögn Jórunnar.
Lánin, sem um ræðir, nema alls um 435 milljónum króna og verða yfirtekin af sveitarfélögunum sem að Strætó standa í hlutfalli af íbúatölu í árslok 2008. Þær kvaðir fylgja yfirtökunni að Strætó verður ekki heimilt að taka ný lán vegna rekstrar eða fjárfestinga.
15.6.2009 | 21:40
Endurskipulagning á rekstri Strætó bs. í ljósi erfiðrar rekstrarstöðu: Rekstrargrunnur tryggður með endurfjármögnun og stefnumótun til fimm ára
Stjórn Strætó bs. samþykkti í dag tillögu um endurskipulagningu sem miðar að því að leysa úr erfiðri rekstrarstöðu Strætó og tryggja áframhaldandi grunnþjónustu. Í þessu felst m.a. að eigendur Strætó, sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu, yfirtaka hluta af langtímalánum Strætó bs. Jafnframt verður unnið að því að hækka á næstu fimm árum hlutfall fargjalda af heildartekjum Strætó bs. til samræmis við það sem tíðkast í nágrannalöndum.
Það er mat stjórnar Strætó bs. að endurskipulagningin feli í sér skynsamlega og raunhæfa lausn á núverandi fjárhagsstöðu og veiti jafnframt nýtt tækifæri til uppbyggingar á rekstri og þjónustu. Með þessum aðgerðum náist jafnvægi í rekstri og hægt verði að byggja upp ásættanlegt eiginfjár- og veltufjárhlutfall á næstu fimm árum. Lánin sem um ræðir nema alls um 435 milljónum króna og verða yfirtekin af sveitarfélögunum sem að Strætó standa í hlutfalli af íbúatölu í árslok 2008. Þær kvaðir fylgja yfirtökunni að Strætó verður ekki heimilt að taka ný lán vegna rekstrar eða fjárfestinga.
Stjórn Strætó bs. samþykkti jafnframt á fundi sínum í dag nýja þjónustustefnu byggðasamlagsins sem er hluti af heildarstefnumótun fyrir félagið. Þetta er í fyrsta sinn frá stofnun Strætó bs. sem mótuð er sameiginleg stefna sveitarfélaganna um strætósamgöngur.
Þar hafa verið skilgreind þjónustumarkmið sem taka meðal annars til leiðakerfis, þjónustutíðni, akstursleiða, leiðakerfisbreytinga auk þess sem markmið hafa verið sett um áreiðanleika, stundvísi og þægindi fyrir farþega. Þjónustustefnuna má nálgast á www.strætó.is.
Jafnframt var samþykkt að nemaverkefninu verði framhaldið með þeim hætti að hlutur hvers nemanda verður nú 15.000 krónur fyrir allan veturinn, en jafnframt mun verða boðið upp á að kaupa annarkort. Þar með greiða nemendur um helming af hagkvæmasta fargjaldakosti Strætó, bláa kortinu, sem veitir 75% afslátt af grunngjaldi.
Almenningssamgöngur hafa sjaldan verið mikilvægari en nú og því er það afar jákvætt að sveitarfélögin hafi náð saman um þessar aðgerðir. Þær eru ekki sársaukalausar, en sýna einbeittan vilja okkar sem að Strætó bs. stöndum til að standa vörð um þjónustuna og tryggja til framtíðar að við getum aukið hana eftir þörfum," segir Jórunn Frímannsdóttir, stjórnarformaður Strætó bs.
Þetta er mikilvægt skref fyrir Strætó sem þýðir að við höfum fast land undir fótum og getum hafið uppbyggingu. Nú munum við loksins geta einbeitt okkur að rekstrinum og þróun þjónustunnar þannig að hún nýtist sem flestum á eins hagkvæman hátt og kostur er," segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs.
Þessi fréttatilkynning var send á fjölmiðla eftir stjórnarfund Strætó bs í dag.
15.6.2009 | 18:26
Tími til að taka Strætó
Þessi grein birtist í Morgunblaðinu í gær 14. júní.
Almenningssamgöngukerfi höfuðborgarsvæðisins stenst fyllilega samanburð við þau lönd sem við berum okkur hvað helst saman við. Engu að síður þá er það svo að við notum þennan góða samgöngumáta of lítið. Nú kreppir víða að og fólk þarf að horfa í hverja krónu og finna leiðir til þess að láta enda ná saman. Ein leið til þess að minnka útgjöld heimilisins er að leggja öðrum eða báðum bílum fjölskyldunnar og nota aðrar leiðir til þess að komast milli staða, best er að byrja á því að taka strætó, hjóla eða ganga til og frá vinnu. Strætó er þægilegur ferðamáti sem fleiri ættu að notfæra sér. Meðan vagnstjórinn sér um aksturinn getur farþeginn setið rólegur og notið ferðarinnar, jafnvel litið í blöðin á leiðinni eða undirbúið sig fyrir daginn. Hvers vegna að keyra sjálfur með allri þeirri fyrirhöfn sem því fylgir þegar þú getur látið skutla þér? Það er ákvörðun að byrja að taka strætó sérstaklega fyrir þá sem ekki hafa tileinkað sér þennan ferðamáta. En það er ekki erfitt að finna út úr því hvernig best sé að taka vagninn, hvar næsta stoppistöð sé eða hvenær vagninn komi. Það er í raun sáraeinfalt. Einfaldast er að byrja á því að fara inn á vefsíðuna www.strætó.is, slá þar inn götuheiti sem lagt skal upp frá og götuheiti sem farið skal til og sjá hvað kemur út úr því. Þannig má finna hvaða mögulegar leiðir eru færar að fara með strætó milli þessara staða. Á vefsíðunni er auk þess hægt að kaupa farmiða eða kort og láta senda heim að dyrum. Sumarið er kjörinn tími til þess að prófa þetta. Stjórn Strætó bs hefur verið í stefnumótunarvinnu þar sem mótuð er stefna fyrir fyrirtækið til framtíðar. Þar er lögð mikil áhersla á þjónustuþætti eins og áreiðanleika, þ.e. að vagninn komi alltaf á réttum tíma, sé aldrei á undan áætlun og ekki meira en þremur mínútum á eftir áætlun. Þar erum við líka að skoða þætti eins og þjónustuþéttni eftir þjónustuþörf og þéttleika íbúðarbyggðar, vegalengd milli stoppistöðva, kostnaðarhlutdeild farþega, þjónustu í vögnunum, þrif og fleira mætti telja allt skiptir þetta miklu máli fyrir notandann. Strætó bs er að vinna sér traust og fastan sess í hugum íbúa höfuðborgarsvæðisins. Það er mikilvægt fyrir Strætó bs að notandinn upplifi þessa þjónustu sem jákvæða, örugga, áreiðanlega og umfram allt þægilega. Sumarið er tíminn til að prófa að taka strætó og skora ég á unga sem aldna að nota nú sumarið til þess að kynnast þessum fína ferðamáta.18.5.2009 | 12:00
Sykur, sætuefni, skattar!
Ég ákvað að setja aftur inn þessa bloggfærslu mína frá 20. febrúar 2008 í ljósi umræðunnar um sykurskatt. Ávaxtadrykkir hafa mikil áhrif á tannheilsu og vil ég hvetja háttvirtan Heilbrigðisráðherra til að kynna sér þessi mál í hörgul áður en hann ríkur af stað með skattlagningu á sykraðar vörur. Hvað um Gervisætuefnin, eru þau heilsusamleg?
Gervisætuefni fitandi!
Í morgunblaðinu í gær kom fram að vísindamönnum í Bretlandi hafi tekist að sína fram á gervisætuefni geti verið fitandi. "Gerð var rannsókn á rottum sem látnar voru borða jógúrt og sýndi það sig að þær rottur sem fengu jógúrt með gervisætu borðuðu meira og þyngdust þar af leiðandi meira en þær rottur sem fengu venjulega jógúrt."
Eins og vinir mínir vita þá hef ég lengi haldið því fram að sætuefni, sykurlausir drykkir og fleira þess háttar geti jafnvel leitt til offitu.
Ég hef því miður aldrei haft neinar rannsóknir eða annað slíkt til að styðja við þessa tilgátu mína. Engu að síður gerðist ég nú svo djörf að setja fram hugleiðingar í þessa veru í grein í Blaðinu í byrjun mars árið 2006. Hér er hluti þeirrar greinar:
"Hugleiðingar
Ég velti því oft fyrir mér hvort það að neyta fituskertrar og sykurlausrar fæðu sé lausnin gegn offitu. Er það ekki einmitt þannig að ef við borðum einungis sykurskert eða sykurlaust og fitusnautt þá þurfum við meira magn til þess að fullnægja þörf líkamans fyrir orku. Getur verið að þessi orku/næringarlausi matur geti haft áhrif á það að við síðan "dettum í það"? Hlaupum út í sjoppu á kvöldin og borðum svo yfir okkur af sælgæti eða öðrum sætindum fyrir framan sjónvarpið. Getur verið að það sé köllun líkamans á næringu vegna þess að hann hafi einfaldlega ekki fengið næga orku yfir daginn? Ég skal ekki segja hvort það sé svo, ég hef engar rannsóknir til þess að styðja þessar hugleiðingar mínar. Það er þó alveg öruggt að fersk matvara er hollari en unnin og við ættum að reyna eftir fremsta megni að nota eins mikið af fersku hráefni og við mögulega getum. "
Það er vert að velta þessu fyrir sér, svo mikið er víst
7.5.2009 | 13:29
Bætt búsetuúrræði fyrir eldri borgara í Reykjavík
Síðan á haustdögum 2006 hef ég veitt forystu (utan hundrað daga) stýrihópi á vegum Borgarráðs sem hefur það hlutverk að vinna að auknum og bættum búsetuúrræðum fyrir eldri borgara í víðum skilningi og eru helstu verkefni hópsins eftirfarandi:
- Að áætla þörf fyrir hjúkrunarheimili, þjónustuíbúðir, öryggisíbúðir, þjónustukjarna, söluíbúðir og önnur úrræði sem eru brýn fyrir aldraða í borginni.
- Gera tillögur um uppbyggingu og framkvæmdir á næstu árum á grundvelli þarfagreiningar. Unnið sé út frá því markmiði að eldri borgarar geti búið sem lengst heima.
- Fjalla um val á samstarfsaðilum, úthlutunarskilmála vegna lóða, fjárhagslegar forsendur og samninga um framkvæmdir í þágu aldraðra.
- Finna bestu kosti í uppbyggingu búsetuúrræða fyrir eldri borgara.
Stýrihópurinn skilaði nýverið inn stöðuskýrslu til Borgarráðs og er hér farið yfir verkefnin síðustu ár. Ég ákvað að setja þetta hérna inn eins og það er í skýrslunni þó það sé kannski ekki mjög auðlesið svona. Mikið af upplýsingum í þessuóg áhugavert að rýna fyrir áhugasama.
Helstu verkefni 2006 |
Verkefnaskrá |
Leitað eftir samstarfi við þá aðila sem eru eingöngu í rekstri og þjónustu við aldraða. Stefnt var að samstarfi, samvinnu og verkaskiptingu vegna framkvæmda og reksturs þjónustu- og öryggisíbúða, þjónustukjarna og hjúkrunarheimilis. |
Þann 18. október var skrifað undir viljayfirlýsingar um annars vegar byggingu og rekstur öryggis- og þjónustuíbúða og þjónustu- og menningarmiðstöð við Eir og hins vegar byggingu og rekstur þjónustuíbúða og þjónustukjarna við Sjómannadagsráðs/ Hrafnistu. |
Útbúa yfirlitskort þar sem fram koma núverandi byggingar fyrir eldri borgara ásamt ýmsum möguleikum varðandi staðsetningu nýrra bygginga. Stefnt var að því að úthluta lóðum til uppbyggingar fyrir aldraða og er þar sérstaklega horft til svæða við þjónustumiðstöðvar sem þegar eru til staðar. |
Svæði við Spöngina. Skipaðar voru tvær nefndir annars vegar undirbúningsnefnd og hins vegar bygginganefnd á vegum Eirar. Undirbúningsnefndin vann að gerð forsagnar fyrir byggingar. |
Svæði við Sléttuveg. Skipaðar vinnuhópur. Unnin forsögn svæðisins í samvinnu við Hrafnistu. |
Endurbætur á eldra húsnæði í Vesturbæ . Ákveðið að gera könnun varðandi bætt aðgengi innan íbúða og í sameign í húsnæði eldri borgara í Vesurbæ Reykjavíkur. Það snýst um að gera fólki kleift að búa lengur heima. |
Svæði í Spönginni. Skipaðar vinnuhópur. Unnin forsögn svæðisins í samvinnu við Hjúkrunarheimilið Eir. |
Helstu verkefni2007 |
Verkefnaskrá |
Sléttuvegur. Gerð byggingasamnings við Hrafnistu um byggingu þjónustuíbúða og þjónustukjarna við Sléttuveg. Á svæðinu verður þjónustukjarni og . Hrafnista mun byggja 100 þjónustuíbúðir og þjónustukjarnann. |
Gerð skilgreininga á þjónustustigi íbúða eldri borgara, þjónustu- og öryggisíbúðir þar sem tekið er mið af þjónustuþörf |
Sléttuvegur. Unnið skipulag að lóð undir íbúðir fyrir aldraða .Samtök aldraðra fái lóð undir 58 þjónustuíbúðir í tengslum við þjónustukjarnann. Nýtt deiliskipulag tók gildi þann 12. september. |
Svæði í Spönginni. Gerð byggingasamnings við Hjúkrunarheimilið Eir um byggingu þjónustu- og öryggisíbúða í Spönginni. Á svæðinu verður þjónustu og menningarmiðstöð. |
Nýtt deiliskipulag í Spönginni tók gildi í lok nóvember 2007. Hafinn var bygging 110 þjónustu- og öryggisíbúða en bygging þjónustu- og menningarmiðstöðvar hefst líklega á árinu 2010 |
Árskógar í Mjódd. Meta möguleika á byggingu nýrra þjónustuíbúða við þjónustumiðstöð Reykjavíkurborgar við Árskóga í Mjódd . Samráð við Félag eldri borgara í Reykjavík. |
Tilraunaverkefni með öryggissíma á eitt hundrað heimilum. Tilgangurinn er að veita fólki aukið öryggi og þjónustu þegar það hefur þörf fyrir hana, ýmist með því að leysa úr vanda þess í gegnum síma eða senda starfsfólk á vettvang ef þess gerist þörf. |
Gerðuberg. Skoða og meta möguleika á byggingu nýrra þjónustuíbúða við Gerðuberg í Breiðholti, þar má líklega koma fyrir allt að 50 íbúðum. |
Heimasíða - Vefsvæði . " Betra að eldast í borginni " Koma upp vefsvæði á heimasíðu Reykjavíkurborgar með upplýsingum um úrræði í búsetumálum aldraðra. Á vefsvæðinu er hægt að nálgast upplýsingar um hvar stendur til að byggja íbúðarhúsnæði fyrir eldri borgara í Reykjavík á næstu árum. Sjá slóða á internetinu http://www.rvk.is/DesktopDefault.aspx/tabid-2324 |
Helstu verkefni 2008 |
Verkefnaskrá |
Gerð viljayfirlýsingar um úthlutun lóða til Félags eldri borgara í Reykjavík. Borgarráð samþykkti úthlutun í Mjódd og Gerðubergi. |
Forvarnarmál Samstarf við Forvarnarhús Sjóvá um forvarnir í heimahúsum. |
Gerð sérskilmála um úthlutun lóða til félaga og samtaka eldri borgara fyrir íbúðir Reykvíkinga 67 ára og eldri. Meginmarkmiðið er að stuðla að uppbyggingu sérhannaðra íbúða og tryggja að íbúðir sem byggðar eru verði seldar á kostnaðarverði. |
Unnið að tillögum með Elliheimilinu Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili, að uppbyggingu hjúkrunarheimilis og þjónustuíbúða í Reykjavík. Skipulag í Úlfarsfelli - Úlfarsárdal til skoðunar . Unnið er að mótun hugmynda um byggingu 200 íbúða fyrir aldraða í Úlfarsárdal í tengslum við uppbyggingu þjónustu og verslunar þar. Humanitas |
Biðlistar eftir þjónustuíbúðum. Markmið verkefnis: Að áætla þörf fyrir þjónustuíbúðir, öryggisíbúðir, söluíbúðir og önnur úrræði sem eru brýn fyrir aldraða í borginni |
Lóð við Gerðuberg, Hólaberg 84. Úthlutun byggingaréttar á 49 íbúðum til Félags eldri borgara í Reykjavík og viljayfirlýsing um kaup Reykjavíkurborgar á 12 íbúðum |
Gerð þjónustusamninga við Hrafnistu. Samningur um þá þjónustu sem veita á og hvað hún kostar,. |
Helstu verkefni 2009 |
Verkefnaskrá |
Gerð húsaleigusamnings við Hrafnistu. Samningur um leigu á 20 þjónustuíbúðum við Skógarveg. |
Gerð húsaleigusamnings við Eir / Hjúkrunarheimili. Samningur um leigu á 22 öryggisíbúðum við Fróðengi 1 - 11. |
Undirbúningur vegna byggingar hjúkrunarheimilis við Sléttuveg. Viðræður við ríkið og Hrafnistu . |
Árskógar í Mjódd. Umsögn um stækkun hjúkrunarheimilis við Árskóga í Mjódd . Samráð við framkvæmdastjóra. |
Skoða það að koma á styrkjum til breytinga á íbúðum, kjósi einstaklingar heldur að búa áfram á sama stað og fá aukna þjónustu þangað. Semja reglur, ræða við ríkið, fjármögnun o.fl. |
Gerð húsaleigusamnings við Hrafnistu. Samningur um leigu á 1400 m2 þjónusturými við Sléttuveg. |
Athugun á byggingarkostnaði íbúðarhúsnæðis fyrir aldraða og leitað verði upplýsinga hjá byggingaraðilum. |
Gerð þjónustusamninga við Eir/hjúkrunarheimili. Samningur um þá þjónustu sem Eir á að veita annars vegar og hins vegar borgin og hvað hún kostar,. |
Í undirbúningi, hönnun og framkvæmd er nú bygging um 336 öryggis- og þjónustuíbúða. Þær skiptast þannig:
|
|
|
|
|
Staður | Samstarfsaðili | Fjöldi íbúða | Eigna- og/eða búsetuíbúðir | Leiguíbúðir |
Spöngin | Eir hjúkrunarheimili | 110 | 90 | 20 |
Sléttuvegur | Hrafnista/DAS | Allt að 100 | 70 | 30 |
Sléttuvegur | Samtök aldraðra | 58 | 58 |
|
Skógarvegur | Félögin Skógarleiti ehf og Elliárin ehf | 20 | 20 |
|
Gerðuberg | Félag eldri borgara | 48 | 34 | 12 |
Til viðbótar við ofangreint fer fram forathugun, deiliskipulagsvinna og frumhönnun varðandi byggingarlóðir á svæði í Suður - Mjódd, Norðurbrún, Dalbraut og Furugerði 1 eða allt að 110 þjónustuíbúðir.
Staður | Samstarfsaðili | Fjöldi íbúða | Eigna- og/eða búsetuíbúðir | Leiguíbúðir |
Norðurbrún | Félagsbústaðir | Allt að 20 |
| 20 |
Dalbraut | Félagsbústaðir | Allt að14 |
| 14 |
Furugerði 1 | Félagsbústaðir | Allt að 6 |
| 6 |
Mjóddin | Félag eldri borgara | Allt að 70 | 70 | 0 |
Einnig fer fram frumathugun varðandi byggingarlóðir í Úlfarsfelli. Unnið hefur verið yfirlit yfir lausar íbúðir sem eru til sölu hjá Félagi eldri borgara ,Samtökum aldraðra og annarra félaga. Í dag eru um 60 íbúðir á söluskrá.
Samkvæmt þessum upplýsingum munu því verða um 500 íbúðir fyrir eldri borgara til sölu og leigu árin 2009 til 2013, en áætluð þörf samkvæmt greiningu og grófri áætlun næstu fimm árin er um 600 íbúðir. Með innkomu bygginga fyrir eldri borgara í Úlfarsfelli á seinni hluta þessa tímabils verður framboð orðið það sama og áætluð þörf.
5.5.2009 | 17:52
Knattspyrnufélagið Þróttur kynnir nýjung í starfsemi íþróttafélaga á Íslandi og gengur í Bandalag með fjölda fyrirtækja
Knattspyrnufélagið Þróttur fagnar á þessu ári 60 ára afmæli sínu og vill á þeim tímamótum kynna nýja og skapandi hugsun sem er svar þessa síunga félags við þeim erfiðleikum sem dunið hafa yfir og hafa mikil áhrif á allt starf og rekstrarumhverfi íþróttafélaga.
Hvað kynnum við?
Við kynnum BANDALAGIÐ sem er nýjung í fjármögnun og rekstri Knattspyrnudeildar Þróttar þar sem byggt er á annarskonar hugmyndafræði en verið hefur við lýði til þessa í rekstri íþróttafélaga á Íslandi.
Hvað er BANDALAGIÐ?
Hugmyndin er fengin að láni frá Danmörku, þar sem hún hefur gefist afar vel. Í samstarfi við fjölda fyrirtækja verður til BANDALAGIÐ sem hefur að markmiði að efla og styrkja Þrótt til dáða en líka að búa til margvísleg og verðmæt tengsl milli einstaklinga og fyrirtækja. Þróttur verður einskonar miðpunktur í samvinnu ólíkra fyrirtækja sem geta þó átt sameiginlega hagsmuni þegar allt kemur til alls og eiga það sameiginlegt að vilja, þrátt fyrir erfitt ástand, halda áfram að styðja við kröftugt íþróttafélag sem rekur umfangsmikið barna- og unglingastarf í hjarta höfuðborgarinnar. Í BANDALAGINU er nú þegar fjöldi fyrirtækja og fleiri hafa lýst áhuga á að taka þátt í því og tengjast félaginu.
Hversvegna BANDALAGIÐ
Þróttur þarf að bregðast við samdrætti í samfélaginu líkt og allir aðrir. Í stað þess að leita eftir einum til tveimur áberandi styrktarfyrirtækjum er hugsunin sú að margar hendur vinni létt verk. Með stofnun BANDALAGSINS verður til vettvangur fyrir smærri og stærri fyrirtækja til að taka höndum saman á nýjan hátt og styrkja gott málefni. Markmiðið er að búa til í senn vina- og viðskiptasamband sem lifað getur um lengri tíma. Þróttarar telja að ástandið í samfélaginu kalli á nýja hugsun og nýjar leiðir í samvinnu fyrirtækja og íþróttafélaga. BANDALAGIÐ er okkar framlag.
Hver er ávinningurinn af BANDALAGINU
Ávinningurinn fyrir Þrótt er ótvíræður því stuðningur fyrirtækja er íþróttafélögum nauðsynlegur. Ávinningurinn fyrir fyrirtækin verður margvíslegur sömuleiðis og sérstaklega í gegnum það tengslanet sem skapast. Því fleiri fyrirtæki sem taka þátt í BANDALAGINU því öflugra verður það og því verðmætara verður það fyrir þá sem þar eru. Stærsti ávinningurinn er þó fólgin í þeirri samfélagslegu ábyrgð sem fyrirtækin sýna með því að taka áfram þátt í jafn mikilvægu verkefni og rekstri íþróttafélagsins
Hvernig tengjast menn innan BANDALAGSINS?
Tengingarnar verða með fjölbreyttum hætti. Miðpunktur samstarfsins verður ný heimasíða, www.bandalagid.is en þar geta fyrirtæki unnið saman á hefðbundin hátt, boðið fram vöru og þjónustu, leitað eftir samstarfi og stofnað til nýrra viðskiptasambanda. Þarna rúmast allt sem hægt er að nefna, tilboð á kartöflum, fyrirlestrar um stjórnum, nýjungar í vöruúrvali og bætt þjónusta. Fyrirtækin sjálf geta nýtt BANDALAGIÐ eins og þau vilja og því fleiri sem nýta það, því kraftmeiri miðill verður það. Um leið leggur Þróttur áherslu á að félagsmenn félagsins þekki BANDALAGIÐ og þá sem í því eru og svari stuðningi fyrirtækjanna með því að bindast þeim sterkum böndum.
Geta allir tekið þátt í BANDALAGINU
Já, öll fyrirtæki sem vilja geta verið með. Engum verður úthýst úr BANDLAGINU.
Hvernig sést BANDALAGIÐ?
Fyrirtækin sem eru í BANDALAGINU verða kynnt með sérstökum hætti á heimaleikjum Þróttar í Pepsi-deildinni í sumar. Að auki verða þau áberandi á íþróttasvæði félagsins jafnt í leik og starfi. Þróttur leggur mikla áherslu á að kynna vel þau fyrirtæki sem með þessum hætti taka þátt í jákvæðri uppbyggingu. Þetta allt er mikilvægt, en síðast en ekki síst verður það einkennismerki BANDLAGSINS sem mun prýða búninga Þróttar í sumar.
Hver verða áhrifin af BANDALAGINU?
Þróttarar eru í eðli sínu glaðir og geðfelldir. Þetta mun ýta undir það. Þessi gleði mun smitast inn í fyrirtækin og frá þeim áfram út í samfélagið og veitir ekki af á þessum síðustu og verstu. Þetta er með öðrum orðum BANDALAG sem kallar fram betra líf og betri fótbolta.
5.5.2009 | 16:49
Samþætt þjónusta í hverfum borgarinnar - tillaga samþykkt samhljóða í borgarstjórn í dag
Í borgarstjórn í dag lögðum við fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks fram svohljóðandi tillögu:
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkir að hefja vinnu við mótun stefnu um samþætta þjónustu í hverfum borgarinnar. Markmið með mótun stefnu um samþætta þjónustu er að ná sameiginlegri pólitískri sýn á þróun, starfsemi, hlutverk og stefnu hverfatengdrar þjónustu í þágu borgarbúa til framtíðar. Borgarráð skipi sjö manna vinnuhóp sem vinni að mótun stefnunnar og leggi hana fyrir borgarráð á fyrsta fundi borgarráðs í október.
Með tillögunni var lögð fram greinagerð sem síðan var dregin til baka að beiðni minnihlutans, en aðalástæða þess að minnihlutinn vildi að greinagerðin færi út var sú að í greinagerðinni var fjallað um það að mikilvægt væri á þessum tímum að taka mið af ástandinu í þjóðfélaginu og því aldrei mikilvægara en nú að hafa hagkvæmni í huga við mótun stefnu til framtíðar. Greinagerðin var svohljóðandi:
Árið 2005 samþykkti borgarstjórn að setja á laggirnar fimm og síðar sex þjónustumiðstöðvar í hverfum borgarinnar.
Markmiðin með stofnun þjónustumiðstöðva voru eftirfarandi:
- Að þjónustan verði aðgengilegri og íbúar geti snúið sér á einn stað með erindi sín
- Að veita markvissari þjónustu með samþættingu verkefna
- Að efla félagsauð í hverfum, auka samstarf við íbúa, frjáls félagasamtök og aðra þá sem sinna grasrótarstarfsemi í hverfum
- Að búa borgina undir framtíðina, meðal annars til þess að hún geti tekið við fleiri verkefnum frá ríkinu
Ákvörðun þáverandi meirihluta í borgarstjórn um stofnun þjónustumiðstöðva var tekin í ágreiningi. Það sem aðallega var gagnrýnt var helst eftirfarandi:
- Miðstöðvarnar þóttu of litlar og ekki var talið að þær gætu orðið alhliða miðstöðvar fyrir alla þjónustu borgarinnar, "one stop shop" eins og lagt var upp með.
- Gagnrýnt var að framkvæmd þjónustunnar yrði dýrari en áður með því að dreifa henni með þessum hætti.
- Þjónusta sem flutt var undir stjórn þjónustumiðstöðva var að stærstum hluta velferðarþjónusta og aðeins hluti af annarri starfsemi borgarinnar var færður undir þeirra hatt. Strax í upphafi var því talið að þjónustmiðstöðvarnar væru ekki að ná upphaflegu markmiði sínu.
Ákveðin reynsla er nú komin á rekstur þjónustumiðstöðva þau þrjú og hálft ár sem þær hafa starfað. Kjörnir fulltrúar hafa haft mismunandi sýn hvað varðar þróun þjónustumiðstöðva og því hvort þjónustu borgarinnar sé betur fyrir komið dreifstýrt eða miðlægt. Af þessum ástæðum er talin þörf á mótun skýrrar stefnu borgarstjórnar, sem nýtur stuðnings bæði meiri‐ og minnihluta.
Næstu ár verða ár samdráttar í tekjum borgarinnar á sama tíma og eftirspurn eftir þjónustu hennar er líkleg til að aukast á ákveðnum sviðum. Æskilegt er því að tekið verði ríkt tillit til þess kostnaðar (eða sparnaðar) sem hugsanlega hlýst af nýrri stefnu sem gæti falið í sér breytt skipulag eða aðra þætti sem tengjast þjónustumiðstöðvum. Lagt er til að einkum verði lögð áhersla á aðgerðir sem hafi í för með sér skjótan ávinning (fyrir starfsemi og/eða kostnað), séu einfaldar í framkvæmd og kostnaður við þær sé í lágmarki. Miða skal við að fulltrúar starfshópsins endurspegli þau svið sem veita þjónustu í hverfum borgarinnar.
Um bloggið
Jórunn Frímannsdóttir
Bloggvinir
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Áslaug Friðriksdóttir
- Baldvin Jónsson
- Einar Vignir Einarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Ingólfur H Þorleifsson
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Kjartan Pálmarsson
- Ólafur fannberg
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Sigríður Jónsdóttir
- Vignir Bjarnason
- Vilborg G. Hansen
- Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
- Vefritid
- Axel Jóhann Axelsson
- Ásta Hafberg S.
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Charles Robert Onken
- Einar B Bragason
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Erlendur Örn Fjeldsted
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Gísli Blöndal
- Gunnar Gunnarsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjalti Sigurðarson
- Jóhann Pétur
- Jón Daníelsson
- Jón Magnússon
- Jón Ríkharðsson
- Kjartan Magnússon
- Kristín Magdalena Ágústsdóttir
- Mál 214
- Natan Kolbeinsson
- Pjetur Stefánsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Stefán Helgi Valsson
- Theodór Bender
- Vilhjálmur Árnason
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.7.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar