Virkari velferð - notendastýrð þjónusta

Hópur sem kallar sig Vive hefur undanfarna mánuði unnið að því að kortleggja hvernig bæta má þjónustu við einstaklinga í heimahúsum. Vive stendur fyrir virkari velferð og hef ég verið svo lánsöm að fá að taka þátt í starfi hópsins. Guðjón Sigurðsson hafði forgöngu um að setja þessa vinnu af stað ásamt Evald Krog og Sigursteini Mássyni. Oddur Ástráðsson var svo fenginn til þess að verkstýra vinnunni. Virkari velferð snýst fyrst og fremst um það að bæta þjónustu við einstaklinga í heimahúsum. Í vinnu hópsins var horft til þess hvernig sambærileg þjónusta er veitt á hinum Norðurlöndunum en þar er þjónustan í miklu ríkari mæli en hér á forsendum notandans sjálf, svokölluð notendastýrð þjónusta.  

En hvað er notendastýrð þjónusta?

Með notendastýrðri þjónustu getur einstaklingur sem þarf á þjónustu að halda t.d. vegna öldrunar, fötlunar eða sjúkdóms, ákveðið sjálfur hverjir þjónusta hann, hvenær og hvar. Hann fær sjálfur valdið til þess að forgangsraða sinni þjónustu.  

Til þess að geta tekið upp notendastýrða þjónustu hér á landi í auknum mæli þurfum við að skilgreina betur forsendur, tíma og kostnað vegna þjónustunnar. Þjónustuþörf hvers einstaklings þarf að meta á hans forsendum, veita honum tækifæri til að ráða til sín aðstoð, búa heimili sitt þannig að þar sé nægilega gott aðgengi og aðgangur að tækjum og tólum til að lifa sjálfstæðu lífi.  

Með notendastýrðri þjónustu fær hver og einn  aðstoð sem hámarkar virkni viðkomandi í daglegu lífi. Við sem þurfum ekki á þjónustu að halda erum vön því að geta ákveðið sjálf minnstu hluti okkar daglega lífs, hvað við viljum gera, hversu virk við viljum vera og hvenær. Það hafa hins vegar ekki allir þennan möguleika í okkar núverandi kerfi. Við í Vive hópnum viljum að velferðarkerfið miði að því að hámarka lífsgæði og sjálfsákvörðunarrétt hvers og eins sem þarf á stuðningi að halda og að það verði gert með því að tryggja hverjum einstaklingi þá aðstoð sem hann þarf á að halda til að lifa sínu lífi með eins miklum lífsgæðum og einstaklingnum er unnt að njóta. Við viljum tryggja einstaklingnum raunverulegt val um þjónustu. Það felst ekki raunverulegt val í því að þurfa að flytja inn á stofnun til að fá þá aðstoð sem þar býðst og það felst ekki raunverulegt val í því að þurfa að vera heima ef einstaklingurinn kýs frekar að þiggja þjónustuna á stofnun. Sama á við um þjónustu sem veitt er heima ef hún er veitt á forsendum annarra en þeirra sem aðstoðina þurfa, það er ekki notendastýrð aðstoð.  

Það er markmið okkar sem komum að starfi Vive hópsins að velferðarkerfið breyti um stefnu í átt að persónulegri notendastýrðri aðstoð. Með slíkri breytingu á hugsun og framkvæmd í kerfinu eykst þátttaka fatlaðra og aldraðra í samfélaginu. Það eru aukin lífsgæði fyrir fatlaða jafnt sem ófatlaða og við verðum öll ríkari af því að samfélagið okkar sé fjölbreyttara, vinnustaðirnir fjölbreyttari og um leið skemmtilegri. Það eiga ekki að vera forréttindi að alast upp í samvistum við fatlaða eða aldraða, það á að vera hluti af lífi sérhvers manns.

Þessi grein birtist í Morgunblaðinu í dag


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jórunn Frímannsdóttir

Höfundur

Jórunn Ósk Frímannsdóttir
Jórunn Ósk Frímannsdóttir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...i_mbl_blogg
  • ...logo
  • ...k_mynd_stor
  • Jólakortamynd 2009 003
  • DSCN2230

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 84622

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband